púff. var að koma heim úr nuddi. þessi hausverkur er nú ekkert fyndinn lengur...reyndar var hann aldrei fyndinn. nuddkonan teygði og togaði í hausinn á mér og það var bara ágætt.
það er alveg ótrúleg samkeppni hjá sjónvarpsstöðvunum hér núna...líklega í usa líka. lokaþættirnir í fullt af seríum eru í næstu viku. maður verður líklega bara að taka upp einn þátt og horfa á annan og missa af þeim þriðja...hehehe. annars er þetta nú flest endursýnt.
jæja svo er ég líka byrjuð að æfa tvö ný lög sjálf..."as long as he needs me" úr oliver og "people" úr funny girl. sérlega skemmtileg lög. ég er líka búin að skella saman lista yfir lög sem ég ætla að reyna að æfa næstu mánuðina. jess fyrir því.
nágrannarnir sem búa fyrir ofan okkur eru aðalráðgátan í lífi okkar tomma þessa dagana. yfirleitt heyrist mjög lítið í þeim á daginn og alveg fram á kvöld. þá byrja lætin...og oft byrja mikil læti um miðnætti eða þar eftir. þetta eru ekki svona venjuleg nágrannalæti eins og hátt stillt tónlist eða sjónvarp eða mikið mas. það virðist vera að þetta fólk fái einhverja svakalega þörf fyrir að flytja húsgögn á nóttunni...og labba hratt fram og aftur. í nótt var hávaðinn orðinn það mikill að okkur tomma tókst ekki að sofna og brugðum við því á það ráð að berja kústskafti upp í loftið. tommi tók það áhættusama verk að sér og með þvílíkum afköstum að það heyrðust rosalegar drunur. þá hætti hávaðinn smám saman en í staðinn heyrðust öskur í einhverjum kalli...það sem við heyrðum var: "go away, leave!" og "go to sleep now"...hmmm...þetta er allt mjög undarlegt og við erum alveg hrikalega forvitin...hvað ætli gangi á þarna á nóttunni...er þetta listamaður sem er að búa til skúlptúra? er þetta smiður sem er að gera upp íbúðina og vinnur best á nóttunni? er þetta maður með redecorating áráttu? eða fer fram risaskák þarna á nóttunni? mig langar eiginlega bara að banka upp á og fá að kíkja aðeins inn...þessi óvissa er að gera mig brjálaða!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home