það er allt að sturlast í valentínusaræsingi hérna í montreal og líklega allri norður ameríku. það eru hjörtu á öllum auglýsingum alls staðar og nú er meira að segja hægt að kaupa lampa og örbylgjuofna á valentínusartilboðum. jahérna. ætli maður taki sig ekki til og baki eða föndri kort í tilefni dagsins en maður er ekki alinn upp við þetta og finnst því ekki rétt að demba sér í þennan fíling eins og landinn. mér finnst líka ótrúlega fyndið að fara í hallmark kortabúðirnar...amerískustu kort í öllum heiminum og skilgreining á væmni. þar eru kortin flokkuð eftir viðtakanda eins og gengur og gerist í svona kortabúðum en flokkarnir eru bara svo hrikalega langsóttir...liggur við að maður geti keypt kort sérhannað fyrir einfætta svarta lesbíu eða eitthvað álíka sjaldgæft.
ég fór ásamt sigrúnu vinkonu hérna að skoða jógastúdíó í gær. okkur leist svakalega vel á staðinn og ætlum að fá að prófa í eina viku. kostar ekki nema $20 að prófa þetta í eina viku...sem er um þúskall íslenskar. jóga ætti að vera ágætisleið til að losa um spennu í öxlum og hálsi.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home