björg vinkona talaði um ungverska nafnadaga í gær á sinni síðu. þetta er mjög skemmtilegur siður finnst mér að halda upp á ákveðin nöfn á hverjum degi. í svíþjóð er þetta svona og ég fann einmitt síðu þar sem maður getur flett upp á nafninu sínu eða ákveðnum degi. minn dagur er 24.júlí. allir að senda mér gjafir þá. og líka 7. október af því að þá er dagur birgittu. jibbíkóla!
í gær var góður matur og góður eftirréttur og góð bíómynd í imbanum. ég bakaði fyllt skinkuhorn...og nóg af þeim. frysti bara flest og hin bíða eftir því að verða étin.
það er alveg hrikalega kalt hérna þessa dagana...núna eru -22° en í nótt náði frostið næstum niður í -30° og á að vera eins næstu nótt. það er líka örlítill vindur. brrrrrrrrr... samt verður manni ekkert voðalega kalt ef maður fer út mjööööööööööög vel klæddur. ég er t.d. alltaf í louis garneou gammosíunum mínum og dúnúlpunni minni, með húfu, trefil um andlitið og vettlinga. eina berskjaldaða svæðið eru augun og efst á nefninu og kinnunum. manni verður óneitanlega kalt þar og tárast eins og ég veit ekki hvað en annars staðar er manni bara hlýtt og ég á það jafnvel til að svitna örlítið ef gengið er hratt.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home