svanhildur anja vinkona mín og sigurður ágúst voru að gifta sig í gær. til hamingju elsku brúðhjón!
mér finnst mjög sniðugt hjá þeim að gera þetta bara í rólegheitunum í danmörku þar sem þau búa. engin stórveisla í giftingunni sjálfri en stefnan hjá þeim er að hafa veislu á íslandi í sumar. ég held bara að dagurinn verði innilegri og persónulegri fyrir bragðið.
ég hef mjög gaman af því að fara í búðir eins og margir vita. hér er það einhvern veginn þannig að í langflestum tilvikum lendi ég á kjaftatörn við starfsfólkið. fólk spyr mjög oft hvaðan maður sé af því að maður talar ekki frönsku...og ef maður segist vera frá evrópu þá er manni sýndur þessi líka rosalegi áhugi. sérstaklega skemmtilegt.
svo er líka ferlega fyndið að sjá skilti sem á stendur "european style" eða "new model from europe" eða bara "european". þetta á að þýða að hlutirnir séu æðislega hip eða flottir...af því að þeir eru frá evrópu! eins og evrópa sé bara eitt land og einn stíll!!! ótrúlega fyndið. ég hef einhvern tímann sagt við sölumenn sem ætla að selja manni þennan evrópufaktor að það vilji nú bara svo skemmtilega til að ég sé frá evrópu og ég sjái barasta alls ekki í einni svipan hvað sé svona evrópskt við hlutinn. þá verður fólk oft á tíðum vandræðalegt og veit ekki sjálft hvað þetta evrópudót þýðir. og ef maður segist vera af sænsku bergi brotinn (ég er jú einn fjórði sænsk) þá kemur alltaf einhver skrýtinn svipur á fólk og svona glott eiginlega ...ahaaaaaaa ...jahááááá..."sumséljóshærðmeðbláauguogflétturogrosalegalauslát" svipur. en svo er ég ekkert ljóshærð með blá augu eða lauslát!!! fyndnar þessar steríótýpur sem fólk er með í hausnum.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home