Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, janúar 25, 2003

og í dag á tooooooooooooommi bró afmæli! tiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiil hamingju tommi bró. því miður á ég enga mynd af honum en það verður nú að segjast að hann er einkar myndarlegur drengur, enda bróðir minn!

fórum í labbitúr í plateu hverfinu í dag. svakalega skemmtilegt hverfi, mikið af börum og kaffihúsum og litlum sætum búðum. mjög mikið um sérverslanir. t.d eru tvær verslanir þarna á st. denis sem sérhæfa sig í miðaldadóti. þar er sumsé hægt að kaupa klæðnað sem var í tísku á miðöldum og annað tilheyrandi. og búðirnar eru tvær!!! ég er farin að halda að harry potter búi ekkert í englandi.

skemmtileg tíðindi af maurunum mínum. í morgun þegar ég kom fram voru tveir stórir og vængjaðir maurar á gólfinu hjá einni gólfrifunni. "hmmm...hvað ætli þessir maurar geri og af hverju eru þeir svona stórir og með vængi" hugsaði ég og fór náttúrulega og fletti upp á netinu fróðleik um maura. ég komst að því að þessir tilteknu maurar eru fullorðnir karlmaurar og voru líklega að hefja hið svokallaða "brúðarflug". þegar maurabú er í útrýmingarhættu taka þessir karlmaurar á flug og makast við verðandi drottningar á stað sem þær velja. ég fylgdist með þessum stað í dag og þeir hafa verið að tínast upp úr rifunni en dáið jafnóðum...og ef þeir hafa ekki dáið strax sjálfir ryksuga ég þá og svo er ég líka búin að setja smá eitur þarna í rifuna.
samkvæmt þessum upplýsingum má vænta að búið hérna undir gólfinu sé að eyðast og von mauranna á clarke 335 sé svotil úti um hamingjusamt líf. snökt fyrir þeim en hlakk fyrir mér.