Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, janúar 20, 2003

það eru komnir maurar í íbúðina...AFTUR!!! arg!!! það voru maurar hérna í sumar, og er það víst frekar venjulegt í svona eldri húsum hér. ég náttúrulega ryksugaði eins og mófó og alltaf með mauraeitrið á lofti (veit ekki hversu heilsusamlegt það er) en þessir gaurar eru alveg hrikalega útsmognir. maður hamast og hamast við að útrýma þeim einn daginn, svo mætir maður næsta morgun og þá er svoleiðis búið að taka mann í bakaríið með krókum og útsmugum. ég var eitthvað búin að ræða þetta við hana nídu...sumsé janitorinn...hehh...maðurinn hennar heitir dong og saman eru þau nída dong...en allavega, hún sagði að þetta væri nú ekkert mál, maður bara spreyjaði þar sem þeir væru. ég held ég þurfi að fara og kvarta meira bara!