ég missti víst af besta ..partýi ársins...sem haldið var á laugardaginn. lá ég lasin í grindavík og í óstuði almennt bara. af myndunum að dæma var mikið lagt í búninga og fólk greinilega að fremja ofurtóngjörninga í karaokegræjunum. ojæja. mæti næst! og hirði verðlaunin fyrir besta búninginn.
mánudagur, desember 30, 2002
ok. sko. gamlársdagur á morgun og ekki búið að bjóða mér í eitt áramótapartý!!! mér finnst þetta frat!!!
við tommi vorum að spá að taka bara laugara og vonast til að hitta eitthvað skemmtilegt fólk þar. hehhh
hér með lýst eftir partýi annað kvöld.
sunnudagur, desember 29, 2002
jæja...klædd og komin á ról. var að koma í bæinn úr grindavík eftir jólaboðamaraþonhelgi. púff!
ég nenni nú eiginlega ekkert að skrifa sko...maður er svo latur svona um jólin...nennir ekki einu sinni að lesa bækurnar sem maður fékk...hehhh...
föstudagur, desember 27, 2002
þriðji í jólum og ég sit á náttfötunum klukkan hálfellefu að pikka á tölvuna og ekki búin að fá mér morgunmat.
jólin eru búin að vera einstaklega góð, mikið fjör og stuð. nú eru bara nokkur fjölskylduboð eftir og einhver partý...hehehe...þetta er svoddan prógram fyrir svona landkönnuði, maður er skyldaður til að mæta hingað og þangað. það er nú reyndar bara ágætt. alveg nauðsynlegt að halda sambandi við fólk þó ekki sé nema einu sinni á ári.
jólagjafirnar voru svaaaaaaaaaaaakalega flottar líka. fékk helling af nothæfu stöffi. ég er reyndar þannig að ég kann ekki að vera óánægð með jóla- eða afmælisgjafir, mér finnst bara nógu ánægjulegt að fólk hafi haft fyrir því að gefa mér eitthvað. :-)
ég vona líka að fólk hafi verið ánægð með gjafirnar frá okkur tomma. ef ekki er tilvalið að kvarta hér og nú...hehehe...
þriðjudagur, desember 24, 2002
mánudagur, desember 23, 2002
og þá er komin þorláksmessa og bærinn angar af skötu!!! ojj!
nú liggur leið niður á skrifstofu hjá pabba í danskan jólamat í boði jómfrúarinnar. namminamm...engin skata á þessu heimili takk fyrir!
nú er allt orðið svo jólalegt á hótel mömmu og jólatréð komið upp óskreytt...pakkarnir komnir í pappírinn og nú er bara að skella sér niðrí bæ og kíkja á mannlífið. horfa á allt stressaða fólkið hlaupa á milli búða í von um að finna síðustu jólagjafirnar. hehehe...ég er sko lööööööööööngu búin að kaupa allar okkar. og búin að pakka þeim inn líka!!!
eníveis...ég ætla að vera með dagatal á morgun og ekki í verri kantinum.
laugardagur, desember 21, 2002
jahérna...vöknuð og farin að hlusta á sænsk jólalög á hótel mömmu. þetta er það sem ég er að tala um!
í dag verður keypt jólatré. líklega verða ekki jafnmikil læti og vanalega þegar þessi athöfn fer fram...við erum svo fá hérna núna, vantar magga og tomma og þeirra fylgifiska.
í gær heyrði ég að það væri kominn nýr orgelleikari í neskirkju! svekk segi ég nú bara...það verður ekki mikið flissað og skemmt sér í ár!
og svo eru bara þrír dagar til jóla...jul, jul strålande jul...
föstudagur, desember 20, 2002
koooooooooooomin til ííííííííííslands!
gærdagurinn fór í ferðalög...flugum frá montreal til washington og tókum leigara þaðan og til baltimore þar sem við biðum í nokkra klukkutíma og flugum svo þaðan til kef. við höfðum nægan tíma til að kíkja aðeins inn til baltimore og náðum að "do baltimore in an hour"...ehehe...sumsé tókum strunsið í miðbænum og skoðuðum það sem við þurftum að skoða á klukkutíma..jíha.
ætli það verði ekki bara græn jól á íslandi í dag!
ekkert dagatal í dag...en ég bendi á síðu tiffany's til skemmtunar.
miðvikudagur, desember 18, 2002
ég ætlaði að skrifa brandara sem hárgreiðslumaðurinn minn sagði mér þegar ég fór til hans en gleymdi því um daginn...
eníveis...hann þekkti einhvern frá íslandi og sagðist vita eitt um ísland...að það væri svakalega mikið um skilnaði og blandaðar fjölskyldur. og brandarinn sem hann sagði var svona: "what is the definition of confusion in iceland? fathers day!!!" hehhhhh...
nú er bara orðið kalt aftur -12°C en sól og logn eins og vanalega. mjög fallegt veður úti.
ég hljóma eins og skrámur með hálsbólgu :-| og get sungið bassa, röddin er í svo miklu kvefrugli.
tommi er að fara að spila með einhverri hljómsveit í kvöld...bara að prófa og sjá hvort þetta er eitthvað stuð. þetta eru víst einhverjir gamlir rokkhundar...sem hentar tomma bara fínt.
ef einhver á eftir að kaupa jólagjöf handa mér þá langar mig roooooooooooooooooooooosalega mikið í svona
þriðjudagur, desember 17, 2002
jæja...komin af snyrtistofunni. fyndnar þessar konur sem búa í nágrenninu. eiga allar hund og ráða einhvern til að fara út að labba með hann. eru svo fastagestir á snyrti- og hárgreiðslustorfunni "le spa" og gefa hárgreiðslumanninum/konunni jólagjöf...allt fullt af jólagjöfum í svona jólagjafapokum. allir æðislega frendlí líka og tala mikið. konan sem var að snyrta mig sagði að ég væri með bjútífúl feis. :-) alveg bjargaði deginum hjá mér...hehehe...vanity!
þá eru tveir dagar þangað til við tommi leggjum af stað til íslands! og ég svotil raddlaus...púff.
tommi fékk sér roooooooooooooooosalega gítaról um daginn...svona hlébarða...algjör töffari með hana. það er líka hlébarðaáklæði á rúminu...hehehe...hmmm...
í dag eru engir demantar...heldur "decorations bought at tiffany's" eins og segir í laginu...
mánudagur, desember 16, 2002
ég held að sokkaframleiðendur og þvottavélaframleiðendur séu í einhvers konar ólöglegri samvinnu. af hverju týnist alltaf annar sokkurinn úr parinu??? ég held að þvottavélarnar séu byggðar þannig að þær greina sokkana í þvottinum og éta einn úr pari völdu af handahófi. kannski langsótt en ég bara finn enga aðra skýringu á þessu miður skemmtilega vandamáli! kannski er lausnin að kaupa alltaf nokkur pör af eins sokkum...svo að maður geti sameinað staka sokka...hmmm...
púff...þvílík hálsbólga! fyrsta alvöru hálsbólgan síðan fyrir hálskirtlatöku, sælla minninga. ehhh...eða þannig.
mér finnst frat að eiga eftir að taka til og pakka og koma mér til íslands verandi hálflasin og slöpp!
það snjóar hér og flestar búðir uppfullar af biðröðum. hér er bara svo góð þjónusta að fólk er ekkert ofurpirrað eins og á mörgum öðrum stöðum. afgreiðslufólk er líka mjög ræðið hérna og það kemur ósjaldan fyrir að fólk spyrji mann hvaðan maður er (hér talar fólk frönsku eða amerísku) og þegar maður segist vera frá íslandi verða allir mjög áhugasamir. flestir vita svo hvað höfuðborgin heitir og jafnvel eitthvað fleira. þetta kemur mér alltaf jafnmikið á óvart. hversu marga staði með íbúafjölda undir hálfri milljón þekkir maður sjálfur? ísland er náttúrulega land með þjóð og tungumál og höfuðborg og svona en samt... fólk í london vissi yfirleitt ekki að ísland væri yfir höfuð til og varð hissa þegar maður sagði að það væri talað sérstakt tungumál þar! allavega finnst mér montrealbúar mjög áhugasamir og vel upplýstir varðandi þessi mál.
mamma og pabbi búin að vera gift í 30 ár!!! til hamingju með það gamla sett :-)
í tilefni af því eru maaaaaaaaaaaaaaargir demantar...
sunnudagur, desember 15, 2002
það er algjört skilyrði fyrir þá sem ætla að heimsækja okkur hérna í montreal að bragða á sniglapizzu sem fæst á pizzastað niðri í bæ. þetta eru svona ítalskamerískar pizzur, alveg svaaaaaaaaaaaaaaaaakalega góðar. siggi sem vinnur með tomma fór með okkur á þennan stað fyrsta kvöldið sem við vorum hér og fékk ég mér þessa víðfrægu pizzu og hef ekki fengið mér annað á þessum stað síðan. heimsins besta pizza! áleggið samanstendur af sniglum, osti, sósu, hvítlauk og einhverju kryddi...algjörlega gómsætt.
heyhh...ég gleymdi að segja að jólalagið sem við tókum upp er upprunalega úr charlie brown. og hneturnar (peanuts) syngja lagið en hljóðfæraleikur er í höndum vince guaraldi trio. ég held að hér sé hefð fyrir því að sýna jólaþátt charlie brown um jólin...allavega er þessi teiknimynd mun vinsælli hér en t.d. á íslandi. í svíþjóð er alltaf andrés önd á aðfangadagskvöld!
og þá er kominn þriðji í aðventu! jahérna...tíminn flýýýýgur...
hnotubrjóturinn var svaaaaaaaaaaaaaaaakalega flottur. leikhúsið var líka flott og við vorum í rosalega góðum sætum. þetta var algjört ævintýri bara...það snjóaði á sviðinu og allt! aðaldansararnir voru rosalega góðir en það voru smáatriði sem fóru í taugarnar á manni eins og þegar dansararnir voru ósamtaka. maður saknar þess nú dálítið að vera í ballet þegar maður sér svona flottar sýningar.
jóhann bróðir hans tomma á afmæli í dag! tiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiil hamingju jóhann! nú er hann orðinn 26 og búinn að ná mér í árum. :-)
laugardagur, desember 14, 2002
ég endurtek...tommi bró...af hverju ertu ekki búinn að skrifa í gestabókina mína?!?!
nú eru einungis fimm dagar þangað til lagt verður í hann til íslands. og ég er búin að kaupa allar jólagjafirnar og löngu komin í jólastuð...þvílíkt og annað eins hefur ekki gerst áður.
ég er líka búin að ákveða að halda áfram í söngtímunum hjá sylvie og er svona að gæla við þá hugmynd að halda áfram í teikningunni líka...það er bara svo hrikalega gaman og frábært að ég get varla sleppt því..hehh...teiknikennarinn hvatti mig líka til þess...dáldið oft...endurtók það í sífellu...hehh
spennan eykst. hnotubrjóturinn er klukkan hálfátta. nú er klukkan tíu mínútur í fimm og ég sit hér við tölvuna og reyni að ærast ekki yfir tónlistinni sem tommi er að spila. gítarhetjurnar alveg að fríka út í hraðasólóum...úff!
hey, ég fékk í skóinn! hello kitty teygjur...ógeðsflott sko. tommi fékk nammi...hehehe...sniðugur jólasveinn ;-)
jæææææææææja...vöknuð! ég er sko í öðru tímabelti en flestir sem koma hingað inn og þess vegna byrja ég ekki að skrifa fyrr en komið er síðdegi hjá þeim...eníveis...dagatalið er hér
er að fara á hnotubrjótinn í kvöld með ballettinum hérna...fer með tveimur kvensum sem búa hér líka. hlakka til!
föstudagur, desember 13, 2002
ég held ég hafi fengið bestu úlpu í heimi í jólagjöf! mér er aldrei kalt í henni en ekkert of heitt heldur og mér tekst að sofna í henni sitjandi í stól hvar sem er...hehhh...t.d. sofnaði ég áðan hérna í vinnunni hjá tomma, í stólnum. það hefur engin úlpa gert mér þetta mögulegt áður! annars held ég að ég sé að fá einhverja pest. eitthvað slöpp...god damn!
svakalega eru margir í prófum núna! þetta er agalegt. ég finn til með fólki að vera að lesa í skammdeginu og rembast á blað þegar þar að kemur...úff...fékk minn skammt í hí. vona að ég þurfi ekki að standa í þvílíku aftur...allt í lagi að fara í próf endrum og eins en ekki svona heví leiðindafræðipróf...maður verður klikkaður af því!
jess! jólasveinninn kom með rafknúna piparkvörn...með ljósi!!! ekki alveg eins og berglind á en samt með sömu fídusum. :-) svo var líka smávegis nammi. hohoho...
við tommi tókum líka upp hið árlega jólalag í fyrradag. eyddum kvöldinu í þetta...reyndar var tommi eitthvað búinn að dútla við trommurnar áður en heildin var tekin upp þarna sama kvöldið. þoooooooooookkalega rólegt og laaaaaaaaaangt lag en bara huggulegt og ágætis æfing fyrir okkur...hehehe...smá falskt á köflum en það er bara betra...hehehe...
í dag er lúsían...og fræðilega séð hefði ég átt að vera búin að baka lussekatter og gera eins og þessi. en nei, ég bara sit hérna löt as ever og tommi ennþá að vakna. reyndar erum við búin að fá í skóinn...ehhh...sokkinn en tommi veit ekki af því.
annars held ég að enginn lesi þetta þ.a. það kannski skiptir ekki máli hvað ég skrifa hérna...
ég læt allavega jóladagatalsmynd fylgja og sú er sko ekki af verri endanum...*BRÁÐN*
fimmtudagur, desember 12, 2002
hey, tommi er nú svoddan gítargúrú að hann hefur gerst svo frægur að hlusta á yngwie malmsteen. eníveis...ég fékk þennan link sendan frá tomma áðan. þarna má heyra yngwie tala með sínum sænska bjagaða hreim í flugvél og blóta konu allsvakalega sem gerðist svo djörf að hella yfir hann vatni.
loxins er maður kominn heim! kvaddi sylvie söngkennara fyrir jólin og gaf henni te og súkkulaði með jólakortinu. mikið svaaaaaaaaaaaaaaaaaaaakalega var hún ánægð. :-)
skemmtilegt atvik í gyminu í dag. eins og ósjaldan hefur verið minnst á er montreal mekka strippstaðanna og gymið okkar tomma er í miðborginni og mikið um svona staði þar í kring. svo í dag þegar ég var búin að sprikla gekk ég inn í búningsherbergið og sé útundan mér unga stúlku vera að blása á sér hárið. ekkert merkilegt við það nema að hún var í buxum, sokkum og skóm en engu að ofan...og með svakalega stór gervibrjóst! í rauninni ekkert merkilegt heldur...bara dáldið skondið. svo fer ég í sturtu og klæði mig í rólegheitunum og svona...blæs á mér hárið...í fötunum! og svo þegar ég er á leiðinni út er þessi sama stúlka ennþá að bardúsa ber að ofan...núna að mála sig og rétt í því sem ég gekk framhjá var hún að púðra á sér brjóstin! hehehe...ég bara vippaði mér fram að afgreiðsluborði og spurði þjálfarann minn hvort mikið væri um strippara þarna hjá þeim og hann játti því...ég lagði því saman tvo og tvo og komst að þeirri niðurstöðu að stúlkan berbrjósta hefur líklega verið að búa sig undir vinnuna hinum megin við götuna. hehehe...gamanaðessu :-)
"Stekkjarstaur: Fannst best að sjúga ærnar en var með staurfætur svo það gekk heldur erfiðlega."
jahá...þá veit maður það!
Og þá eru jólasveinarnir farnir að trítla í bæinn...eða öllu heldur byggða...hmmm...ekki alveg úthugsað plott hjá þeim held ég...hvaða leið labba þeir eiginlega ef þeir fara til allra? og hvar enda þeir?
miðvikudagur, desember 11, 2002
jææææææææææææææææææææææja...komin heim úr síðasta teiknitímanum...og bara gekk þrusuvel...teiknuðum lifandi módel. ég missti af nöktum, svörtum karlmanni í síðustu viku!!! god damn!!! núna var bara alklædd kona með svakalega skrýtið andlit. samt stuð að teikna hana. hefði eiginlega ekkert viljað teikna hana nakta kom tú þínk off itt.
jájá...hér er svo mikið jólastuð að meira að segja póstmaðurinn sendir manni jólakort! og það er sko laaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaangt síðan fólk byrjaði að skreyta hérna...byrjaði um miðjan nóvember og hefur síðan þá farið stigvaxandi...held að þetta stefni í algjöra skrautorgíu...allt í ljósum og rauðum slaufum.
hey, svo er alltaf sami betlarinn á horninu hjá matvörubúðinni hérna rétt hjá og hann er alltaf með sömu línuna: "spear a bit of change. down on my luck" og við tommi fórum að velta fyrir okkur hvort þetta væri svona trademark betlaranna, þ.e. línan þeirra. man eftir einum sem sagði: "help the homeless, home the helpless" og líka "need 85 cents to have enough for a cup of coffee" og svo eru sumir sem eru rosa streit forvard "give me change." ætli menn séu buffaðir fyrir að nota línu einhvers annars? og ætli menn skrái hjá sér hvað þeir fá fyrir ákveðnar línur? hmmm... annars eru þessir betlarar alveg glataðir. ætlast til þess að fólk gefi þeim peninga fyrir að hanga úti á götu allan daginn. lágmark að þeir vinni eitthvað fyrir peningnum! svo eru unglingsdópistabetlararnir verstir...segja manni frekjulega að gefa þeim pening og verða svo bara móðgaðir ef maður segir nei.
fer í síðasta teiknitímann í dag og á eftir að gera self portrait fyrir hann ennþá...púff...
nú eru bara átta dagar þangað til við tommi leggjum af stað til íslands...jahérna...tíminn líður svo ótrúlega hratt!
þriðjudagur, desember 10, 2002
sjiii...það vantar líka tomma bró um hátíðarnar...hann verður í london...að vinna...öll jólin!!! þessir læknar!!!
og tommi bró, ef þú lest þetta...það er kominn tími til að þú skrifir þig í gestabókina mína...hohoho. :-)
nú er það sumsé komið á hreint að britta litla systir kemur í heimsókn til okkar eftir jól...sem er gott, sem er mjög gott. hún getur þá líka borið allar jólagjafirnar sem ég á eftir að fá frá ykkur öllum. hehehe...smá grín bara...hehhh...
þó að það sé ekki komin þorláksmessa erum við samt búin að skreyta jólatré. okkur fannst bara stemmning að gera eins og kanadamenn...og ná smá litlu jólum áður en haldið verður til íslands í rigninguna.
mánudagur, desember 09, 2002
hmmm...nú er ég ekki heima hjá mér og get þar af leiðandi ekki búið til jóladagatal í dag...ekki fyrr en seint um síðir. biðst afsökunar hér með.
við vöknuðum klukkan hálfsjö í morgun!!! og ég fór í lest klukkan 7:55 til að geta hitt yvonne og sigrúnu sem búa hérna...fórum í smá verslunarleiðangur. ég er orðin mjög syfjuð aftur. :-/
Looooooooooooooooooooooooooksins! síðan okkar er búin að vera niðri í tvo daga útaf einhverju dns dóti sem virkar ekki....sko ekki okkur að kenna!
eníveis. höfðum það náðugt um helgina og kláruðum jólagjafainnkaupin að mestu leyti. ég söng á tónleikum og gekk það bara fínt.
í morgun var -18°C og windexið (með áhrifum vinds) var það -30°C!!! horið fraus!!!
laugardagur, desember 07, 2002
vorum að koma heim af tónleikunum hjá bræjan og remí. eins og tónlistin hans remí er fönkí og kúl þá var hljóðmaðurinn hans alveg að klúðra þessu. hann hækkaði svoleiðis í bassatrommunni að það heyrðist ekkert í neinu öðru og fólk sat með angistarsvip og hélt fyrir hjartað. mér var farið að líða illa eftir nokkur lög hjá honum...svoleiðis búið að hamra á hjartanu í manni og rugla í því.
bræjan kom bara á óvart...ég hef aldrei verið neitt mikið fyrir hann og hans tónlist en bara leiddist alls ekki. þeir komu líka með skemmtilegan útúrdúr í endann þegar þeir hoppuðu upp á lítið svið eftir uppklappið sem staðsett var hinum megin í höllinni og vildi svo heppilega til að við vorum staðsett fjórum röðum frá því. þar af leiðandi sáum við allt rosalega vel og hefðum getað hrækt á sviðið ef við hefðum viljað!
það var eitthvað lúðapar staðsett fyrir framan okkur og gæinn var alltaf að gera lúftgítar og notaði svo löppina fyrir gítar og dansaði lambada við kærustuna og hélt að allir væru að horfa á hann og dást. hehh...svo var hann alltaf að pikka í fólk í kringum sig og segja því að standa upp. ég gaf honum bara merki um að ég væri að horfa á tónleikana og ætlaði ekkert að taka þátt í lúðadansinum hans.
en nú fer ég í rúmið enda klukkan LANGT gengin eitt eins og mamma segir.
föstudagur, desember 06, 2002
ég held að það sé kominn tími til að ég búi til dagatal...og þemað verður tiffany's og demantar. jess!
við vorum að skoða mbl.is í gær og tommi kom með þessa snilldarhugmynd. það er alltaf rok á íslandi og þess vegna þyrfti að vera sér flipi þarna á síðunni fyrir "fok". þar yrði sumsé útlistað hvað hefði fokið um daginn og hvað skaða það olli o.s.frv.
hér með er britta litla systir beðin um að vera svona sædkikk og kommenta á allt sem ég skrifa. og koma með veðurlýsingu á hverjum degi.
nú er komið svona kommentadæmi líka, þ.a allir geta tjáð sig á síðunni...aðallega britta þó...hohoho
björg hefur lög að mæla. þessir gæjar eru rooooooooooosalegir. man eftir guðdómlegu skónum sem ég skoðaði í london. tomma fannst þeir meira að segja rosalegir...fannst bara að ég ætti að smella mér á par...hehh...kostuðu 200 pund að minnsta kosti...sem gerðu um 30þúskell á sínum tíma. samt i'd kill for a pair of leopard d&g stilettos...hehehe
í kvöld förum við á tónleika með bræjan adams og remí sjand. tommi ætlar að mæta með gítarinn og spila með öllum lögunum hans bræjans og ég ætla að vera með húfu og sólgleraugu og syngja lögin hans remí. kannski tökum við líka minidiskdótið og myndavél og búttleggum dæmið...hehehe...
við ætlum að klára að versla jólagjafir um helgina og þar með slegið met í að vera búin, öllu heldur byrjuð, á jólagjafainnkaupum fyrir þorláksmessu. þeinkjúverrímötsj.
fimmtudagur, desember 05, 2002
nohh...það er aldeilis að fólk er orðið metnaðarfullt í gestabókaskrifum! myndir og hvaðeina.
var að koma heim rétt í þessu og verslaði jólakjólinn á leiðinni heim úr gyminu. elephants yeah!
merkilegt hvað sumir gæjar eru fyndnir þegar þeir eru að lyfta. horfa á sig í speglinum á meðan þeir eru að pumpa og líta út fyrir að hugsa: "ég er hrikalegur, ég er hriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiikalegur...alveg hryyyyyyyyyyykalegur". það var einn svoleiðis í dag og við tommi áttum bágt með okkur. hann var með derhúfu og búinn að bretta ermarnar alveg upp svo að það sæist nú örugglega allt. svo stundi hann rosalega mikið á meðan á pumpinu stóð og hélt að hann væri nú að slá í gegn en greyið vissi ekki að stelpurnar í salnum voru farnar að líta hver á aðra og flissa. ég skildi ekki alveg hvað þær sögðu...veit samt að það var franska. :-/
vei...það eru fleiri búnir að skrifa...veiiiiii...ég held ég standi bara upp og dansi smá.
jæja. ég er farin í söngtíma til hennar sylvie.
jæja...dagur tvö. allt að fjúka á íslandi sýnist mér á mbl.is, meira að segja þakið á vesturbæjarlauginni. svakalegt! ég vona bara að mamma og pabbi og litla systir fjúki ekki. þá þyrfti ég að leita að þeim í jólafríinu. hehehe...
við horfðum á skemmtilegan þátt í sjónvarpinu í gær, full metal challenge. liðin sem taka þátt eiga að búa til ofurjeppa á nokkrum dögum og leysa svo þrautir og keppa á móti öðrum. í gær voru the ice vikings að keppa og rústuðu keppninni algjörlega...tóku bandaríska og breska liðið í bakaríið. jess!
mér finnst fólk vera latt við að skrifa í gestabókina! FNUS!
miðvikudagur, desember 04, 2002
það er slatti kalt í dag. -11°C þessa stundina (12:56) og humidexið er víst -21°C af því að það er 61% raki. nánari lýsingu á veðrinu má nálgast hér.
ég vaknaði í gær við níl jong í útvarpinu og ákvað því að tékka á nokkrum lögum með honum...fín mússík...old man, harvest moon, heart of gold og fleiri. svo keypti ég mér tvo karaoke diska um daginn...the music of cole porter og george gershwin. ágætt að raula við nokkra slagara með míkrafóninn tengdan í græjurnar...svo get ég líka tekið upp og hlustað á sjálfa mig. sem er reyndar frekar pínlegt. alltaf svo skrýtið að hlusta á sjálfan sig.
ég er að fara að syngja á tónleikum á laugardaginn. skólinn sem ég er í heldur þá og eru það nemendur sem troða upp. ég ætla að syngja rólega ballöðu sem heitir "get here" (eftir brendu russel en oleta adams söng það síðast) og kvenmaður að nafni samia ætlar að spila undir. hey, þeir sem eru í stuði til að skella sér á nemendatónleika í montreal...mætið í marianopolis college klukkan fjögur á laugardaginn. bí ðer or bí skver. engar afsakanir um dýr flugfargjöld takk!
nú er meira að segja komin gestabók...
tommi valdi litinn á síðunni svo ég valdi litinn á gestabókinni...hehehe...
ollræt. sumsé...þetta er bloggsíðan okkar tomma. planið er að skella inn stöffi hér reglulega svo að vinir og vandamenn geti fylgst með okkur. kannski setjum við inn myndir og hljóð þegar ég er búin að rifja upp html og hvernig þetta allt virkar. svo vantar nú líka gestabók og kommentakerfi og alles.
ég fór í canadian tire í gær (sem er húsasmiðja kanadamanna) og keypti eitt stykki gervijólatré og jólaserju við. skreytti svo stöffið og skellti eins og einum pakka undir. elephants yeah! ég er sko komin í jólastuð!





