vorum að koma heim af tónleikunum hjá bræjan og remí. eins og tónlistin hans remí er fönkí og kúl þá var hljóðmaðurinn hans alveg að klúðra þessu. hann hækkaði svoleiðis í bassatrommunni að það heyrðist ekkert í neinu öðru og fólk sat með angistarsvip og hélt fyrir hjartað. mér var farið að líða illa eftir nokkur lög hjá honum...svoleiðis búið að hamra á hjartanu í manni og rugla í því.
bræjan kom bara á óvart...ég hef aldrei verið neitt mikið fyrir hann og hans tónlist en bara leiddist alls ekki. þeir komu líka með skemmtilegan útúrdúr í endann þegar þeir hoppuðu upp á lítið svið eftir uppklappið sem staðsett var hinum megin í höllinni og vildi svo heppilega til að við vorum staðsett fjórum röðum frá því. þar af leiðandi sáum við allt rosalega vel og hefðum getað hrækt á sviðið ef við hefðum viljað!
það var eitthvað lúðapar staðsett fyrir framan okkur og gæinn var alltaf að gera lúftgítar og notaði svo löppina fyrir gítar og dansaði lambada við kærustuna og hélt að allir væru að horfa á hann og dást. hehh...svo var hann alltaf að pikka í fólk í kringum sig og segja því að standa upp. ég gaf honum bara merki um að ég væri að horfa á tónleikana og ætlaði ekkert að taka þátt í lúðadansinum hans.
en nú fer ég í rúmið enda klukkan LANGT gengin eitt eins og mamma segir.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home